Fréttir


Söguþing 2012

Skráð þann 25. apríl 2012 kl. 20:10

Fjórða íslenska söguþingið verður haldið í húsakynnum Háskóla Íslands 7.-10. júní
næstkomandi. Fyrsta Söguþingið var haldið árið 1997 og þingið nú er eins og fyrri
þing vettvangur sagnfræðinga til að kynna niðurstöður nýjustu rannsókna í íslenskri
sagnfræði og gefa yfirlit yfir stöðu greinarinnar.

Málefnin á þinginu verða fjölbreytt og yfir 90 fyrirlesarar munu flytja erindi um
sögusýningar, Stóru-bólu, Hrunið, umhverfismál og Vesturheimsferðir svo eitthvað sé
nefnt. Sagnfræðistofnun hefur auk þess boðið þremur heimsþekktum fyrirlesurum að
halda erindi á þinginu; þeim Lindu Colley og David Cannadine frá Princeton háskóla
og Geoff Eley frá Michigan háskólanum. Linda mun flytja Jóns
Sigurðssonar-fyrirlesturinn á þessu þingi. Þá munu þær Anne Deighton frá
Oxford-háskóla og Anne Katherine-Isaacs frá háskólanum í Pisa tala á opinni málstofu
um Evrópumál á sunnudeginum.

Skráning fer fram á heimasíðu þingsins, akademia.is/soguthing. Rástefnugjald er
9.900 krónur en háskólanemendur greiða 4.900 krónur. Á laugardeginum verður
hátíðarkvöldverður á Grand-hótel, verð á mann er 7.500 krónur. Hægt er að skrá sig á
kvöldverðinn með því að senda
staðfestingu á netfangið khb@storsaga.is.

Allar upplýsingar um þingið og dagskrá þess er að finna á heimasíðunni
akademia.is/soguthing.

Aðalfundur félags sagnfræðinema við Háskóla Íslands

Skráð þann 29. mars 2012 kl. 10:54 | Engar athugasemdir

Aðalfundur Fróða verður haldinn næsta föstudag (30.03.12) á efstu hæð Dillon. Frír bjór verður í boði og einnig verður haldið pub quiz eftir að fundinum lýkur.

Á fundinum verður kosin ný stjórn Fróða en leitað er af frambjóðendum í eftirfarandi sæti:

1. Formaður
2. Meðstjórnandi
3. Gjaldkeri
4. Ritari
5. Þrír námsbrautarfulltrúar (einn á MA-stigi)
6. Tveir deildafulltrúar
7. Stjórn alþjóðafélags sagnfræðinema.

Endilega sendið  skeyti á std2@hi.is ef þið hafið áhuga á framboði en einnig verður gefinn kostur á því að fara í framboð á sjálfum fundinum.

Allir eru velkomnir sem stunda sagnfræðinám, Fróðir og óFróðir!

Þannig að endilega láta sjá sig og sýna lit, þetta verður svaka stuð. Tímasetning verður auglýst síðar með e-maili og inn á Facebook-grúppunni "Sagnfræðinemar", endilega addið ykkur í hana ef þið eruð ekki meðlimir. 

Mbkv. Harðstjórnin

Hrekkjavaka

Skráð þann 25. október 2011 kl. 14:12

Næsta föstudag, 28. okt, mun Fróði standa fyrir hrekkjavökusamkomu ásamt nokkrum öðrum háskólanema-félögum. Ég læt með fylgja "viðburðalýsingu" beint af facebook.


Time
Friday at 8:00pm - October 29 at 12:00am

Location
Norðurpóllinn
Sefgörðum 3


More Info
Fróði, Kuml, Þjóðbrók, Homo og Curator ætla að halda svæsið Halloween partý í ár! 

Við ætlum að gera þetta almennilega og því verður DJ á staðnum og ókeypis bjór í boði nemendafélagana. Það verður því enginn bar á staðnum en fólki er velkomið að mæta með sitt eigið áfengi. 

Reynum samt að halda ofurölvun í lágmarki en ef að því kemur þá verða nóg af tilvonandi hjúkkum á svæðinu til þess að hugsa um bytturnar.

Auðvitað eiga síðan allir að mæta í búningum en verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn!

Enginn má því missa af þessu frábæra partýi en það mun án efa komast í sögubækurnar (Fróði getur tekið það að sér).
ATH. aðeins þeir sem greitt hafa félagagjald eiga rétt á fríðindum í boði Fróða.

og fyrir þá sem ekki rata á Norðurpólinn:

Gjaldkerinn.

Allt á fullu!

Skráð þann 30. ágúst 2011 kl. 16:26 | Engar athugasemdir

Skólaárið er komið í gang og verður að segjast að það er heldur betur góð stemming fyrir því, myndarlegur nýnemahópur hefur verið duglegur að ganga í félagið og virðist við fyrstu sín að þetta sé öflug viðbót við nú þegar frábæran hóp félagsmanna!

Ég minni lengra komna sagnfræðinema á að endurnýja fróða-skráningu sína, annars verða þeir ófróðir og hendur þeirra óvelkomnar í hlýja og gjafmilda vasa félagsins.

Við verðum sem áður hefur komið fram á Facebook síðu sagnfræðinema (ef þú hefur ekki komist í kynni við þá síðu einfaldlega sláðu inn "sagnfræðinemar" í leitarglugga fb.) verðum við að taka á móti skráningum í Árnagarði um hádegisbil næstu daga.

Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta þá koma millifærslur einnig til greina.

rkn. 0137-26-077080
kt. 630493-2189
4.500 kr fyrir tvö misseri,
2.500 kr fyrir eitt.



Framundan.

Á föstudaginn næstkomandi ætla kennarar að taka á móti nýnemum og að því loknu ætlum við að skemmta okkur með þeim á Faktory og hvetjum við sem flesta lengra komna til að mæta.

Fyrsta vísindaferð vetrarins verður 9.september, skráning og nánari upplýsingar auglýstar þegar nær dregur. Að henni lokinni verður auka-aðalfundur fróða haldinn á frábærum stað sem tilkynntur verður síðar.

16. september - októberfest og verðum við með viðburð tengdann því.

23. september - Óvissuferð!!! nánar auglýst síðar


Eins og sjá má er nóg fyrir stafni og til þess að taka fullan þátt í þessu er nauðsynlegt að vera "Fróður"

f.h. Fróða,

Aron Kárason
Gjaldkeri



Ný stjórn Fróða

Skráð þann 2. apríl 2011 kl. 14:06 | Engar athugasemdir

Ágætu sagnfræðinemar.

Ný stjórn Fróða var kjörinn á aðalfundi Félagsins í gærkvöldi. Hana skipa eftirfarandi einstaklingar:

Signý Tindra Dúadóttir, formaður
Mathilda Follend, varaformaður
Andri Þorvarðarson, ritari
Aron Kárason, gjaldkeri
Steinunn Björk Bragadóttir, varamaður
Jóhann Ólafsson, varamaður

Nýnemafulltrúi verður svo kjörin á aukaaðalfundi í haust.

Einnig var kosið í nokkur embætti í viðbót.

Námsbrautarfulltrúar næsta vetur verða Andrea Björk Andrésdóttir og Níels Pálmi Skovsgård Jónsson. Andrea hlaut einnig kjör í deildarfulltrúa sagnfræði- og heimspekideildar.

Að lokum var kosið í stjórn Alþjóðafélagsins. Signý Tindra hlaut kjör sem formaður, Sigurður Freyr Ástþórsson sem ritari, Björn Reynir Halldórsson sem gjaldkeri og Vilhjálmur Ólafsson sem meðstjórnandi.

Fráfarandi stjórn Fróða þakkar fyrir sig og óskar nýju stjórninni velfarnaðar á næsta vetri.

Ykkar sögulega,
Fráfarandi stjórn Fróða.

HásKolaport 2. apríl.

Skráð þann 26. mars 2011 kl. 11:22 | Engar athugasemdir

Kæru Stúdentar,

Loksins er aftur komið að því!

Þann 2. apríl næstkomandi verður haldið HásKolaport.

Ef að þig vantar að rýma til í skápunum eða
nemendafélagið er að reyna afla sér smá peninga þá er þetta tækifæri fyrir
ykkur.

Á HásKolaporti geta nemendur við HÍ pantað sér borð og selt að vild án
gjalds.

Það verða 36 borð í boði - fyrstur pantar fyrstur fær.

Skráning fer fram á netfangi Stúdentaráðs, shi@hi.is.
Nauðsynlegar upplýsingar:

- nafn nemenda / nafn nemendafélags
- deild við HÍ


kv.Stjórnendur HásKolaportsins.